flugfréttir
26 farþegar slasast í ókyrrð hjá China Eastern
Airbus A330-200 breiðþota China Eastern
Að minnsta kosti 26 manns slösuðust um borð í Airbus A330 breiðþotu frá China Eastern Airlines er mikil ókyrrð reið yfir er vélin var í 39.000 fetum yfir Rússlandi á leið frá París til Kunming í Kína í gær.
Eftir að ókyrrðin var yfirstaðin hafði vélin misst hæð sem samsvarar 4.000 fetum en fjórir voru fluttir á sjúkrahús eftir að vélin
lenti 5:45 klukkustundum síðar í Kunming.
Ókyrrðin stóð yfir í um 10 mínútur en þegar ástandið var sem verst þá köstuðust þeir farþegar, sem ekki voru með beltin spennt, upp
í loftið úr sætum sínum og slóust upp í loftaklæðninguna í farþegarýminu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.