flugfréttir
GECAS pantar 100 Airbus A320neo þotur
Tölvugerð mynd af Airbus A320neo í litum GECAS
GE Capital Aviation Services (GECAS) lagði í morgun inn pöntun í 100 eintök af Airbus A320neo þotunni á flugsýningunni í París sem hófst í dag.
Pöntunin var gerð skömmu eftir að Boeing svipti hulunni af Boeing 737 MAX 10
sem er ætlað að etja kappi við Airbus A321neo þotuna.
Með þessari pöntun hefur GECAS pantað yfir 600 farþegaþotur úr Airbus A320 fjölskyldunni
en af þeim eru 220 af A320neo-kynslóðinni og þar af 33 af gerðinni Airbus A321neo.
GECAS er stærsta flugfélaleigufyrirtæki í heimi en félagið hefur í mörg ár keypt þotur frá t.a.m. Boeing og Airbus og leigt þær áfram til flugfélaga um allan heim en fyrirtækið var stofnað árið 1993.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.