flugfréttir

CFM ætlar að auka afköst sín um 800 hreyfla til viðbótar

20. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:57

CFM International framleiðir LEAP-hreyfilinn fyrir Boeing 737 MAX, Airbus A320neo og nýju kínversku C919 þotuna frá COMAC

Hreyflaframleiðandinn CFM International ætlar að auka afkastagetu sína með því að smíða 800 fleiri CFM og LEAP-hreyfla milli áranna 2018 og 2020 en til stóð að framleiða.

Þetta var ákveðið í kjölfar þeirra fjölgunar sem orðið hefur í pantanir í nýjar þotur frá Boeing, Airbus og COMAC.

GE Aviation-Safran, sem er í samvinnu við CFM International, ætlar sér að afhenda 1.900 hreyfla á þessu ári en 1.400 af þeim verða af gerðinni CFM56 en framleiðsla á LEAP-hreyflinum mun ná 2.100 eintökum árið 2020.

CFM International á von á því að fleiri pantanir verði gerðar á næstu dögum í nýjar þotur frá Airbus og Boeing en því fylgir aðskilin pöntun sem flugfélög og viðskiptavinir leggja inn til hreyflaframleiðanda en CFM framleiðir hreyfla fyrir Airbus A320 og Boeing 737 MAX.

„Airbus og Boeing báðu okkur um að bæta við a.m.k. 800 hreyflum í þann fjölda sem við höfðum áætlað að framleiða til ársins 2020“, segir David Joyce hjá CFM International sem tekur fram að hreyflaframleiðandinn muni vel ráða við þessi auknu afköst.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga