flugfréttir
Norwegian flýgur yfir Atlantshafið með Boeing 737
Fyrsta fluginu fagnað
Norwegian hefur hafið áætlunarflug yfir Atlantshafið með Boeing 737 með flugi milli Edinborgar og þriggja áfangastaða á austurströnd Bandaríkjanna.
Fyrsta flugið var flogið þann 15. júní frá Edinborg til Stewart-flugvallarins í New York, daginn eftir flaug félagið
frá Edinborg til Providence á Rhode Island og þann 17. júní var flogið í fyrsta sinn frá Edinborg til Hartford
í Connecticut.
Til stóð að fljúga öll þessi flug með Boeing 737 MAX þotunum en þar sem afhendingum á þeim seinkaði
þá hefur Norwegian byrjað á því að nota Boeing 737-800 þotur til flugsins fyrst um sinn.
Norwegian mun fljúga vikulega frá Edinborgar til Stewart-flugvallarins í New York, fjórum sinnum í viku til Providence
og þrisvar í viku til Hartford.
Skorið á kökuna í tilefni að fyrsta flugi Norwegian frá Edinborg til Stewart-flugvallarins
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.