flugfréttir
AirAsia X hættir við að fljúga til Evrópu
Airbus A330 breiðþota Air Asia í flugtaki
AirAsia X hefur hætt við að hefja flug að nýju til Evrópu eins og félagið ætlaði sér að gera en félagið fékk í febrúar leyfi til að fljúga til Gatwick-flugvallarins í London.
Til stóð að taka á leigu Boeing 777-300ER þotu en Tony Fernandes, framkvæmdarstjóri AirAsia Group, hefur greint
frá því að félagið ætli sér að einblína frekar á Asíumarkaðinn.
AirAsia flaug til London Gatwick en hætti því flugi árið 2012 sökum þess hversu dýrt þotueldsneyti var á þeim tíma.
„Við höfum ákveðið að langflug á ekki við reksturinn eins og er og við ætlum ekki að láta draga okkur inn í verðstríð
til London“, sagði Fernandes. - „Við ætlum að leyfa „stóru strákunum“ að slást yfir Evrópu en mörgum blæðir það
stríð nú þegar“, bætti Fernandes við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.