flugfréttir
Þriggja vikna seinkun á PW1100G hreyflinum
PW1100G hreyfillinn
Þriggja vikna seinkun verður á afhendingum á PW1100G hreyflinum frá Pratt & Whitney til Airbus sökum mistaka sem urðu hjá birgjum sem framleiða íhluti í hreyfilinn.
PW1100G er einn af þeim hreyflum sem knýr áfram Airbus A320neo þoturnar en nauðsynlegt er að framkvæma
sérstakt próf sem tekur eina klukkustund á ákveðnum fjölda hreyfla til að ganga úr skugga um að þeir séu í lagi vegna
mistakanna.
Vandamálið hefur ekki áhrif á þá hreyfla sem er á þeim Airbus A320neo þotum sem búið er að afhenda.
Pratt & Whitney segir að þetta muni ekki hafa áhrif á þann fjölda hreyfla sem til stendur að afhenda í ár
sem eru 350 til 400 PW1100G hreyflar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.