flugfréttir
WOW air fyrsta flugfélagið til að fá A321neo afhenta í Evrópu
Fyrsta Airbus A321neo þota WOW air kemur til landsins á næstu dögum
WOW air verður fyrsta flugfélagið í Evrópu til að hefja áætlunarflug með Airbus A321neo þotunni en félagið hefur nú þegar fengið sína fyrstu Airbus A320neo vél.
WOW air tók í dag formlega við fyrstu Airbus A321neo þotunni af þeim tveimur sem félagið pantaði en ein
slík vél var pöntuð í júlí í fyrra á Farnborough-flugsýningunni og annarri A321neo var bætt við pöntunina í mars í vor.
WOW air er fyrsta evrópska flugfélagið sem tekur við Airbus A321neo en aðeins eru tveir mánuðir frá því
fyrsta eintakið af Airbus A321neo var afhent til Virgin America.
Fyrsta A321neo þota WOW air ber skráninguna TF-SKY en vélin er sautjánda þotan í flota WOW air og er vélin
tekin á leigu frá flugvélaleigunni Air Lease Corporation.
TF-SKY er skráningin á fyrstu Airbus A321neo þotu WOW air
Vélin er nú á flugsýningunni í París en hún mun hefja áætlunarflug í byrjun júlí og verður hún bæði notuð í flugi til áfangastaða
í Evrópu og Norður-Ameríku.
WOW air á von á 11 þotum til viðbótar á næstu misserum; fimm af gerðinni Airbus A321, einni Airbus A321neo og
þá mun félagið fá fjórar Airbus A330-900neo breiðþotur.
Flugfloti WOW air mun telja alls 24 þotur árið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.