flugfréttir

Boeing var með fleiri pantanir en Airbus á Paris Air Show

- Boeing 737 MAX 10 stal senunni

22. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:17

Boeing tók inn pantanir í 571 þotu á meðan Airbus fékk pantanir í 326 þotur

Boeing hafði sigur úr bítum í kapphlaupi flugvélaframleiðandanna á flugsýningunni í París.

Boeing tók inn pantanir í 571 þotu á meðan Airbus fékk pantanir í 326 þotur en flestir viðskiptavinir pöntuðu meðalstórar þotur eins og búist var við.

„Boeing 737 MAX stal senunni“, segir Ihssane Mounir, aðstoðarmarkaðsstjóri í söludeild farþegaþotna hjá Boeing en talið er að Boeing 737 MAX 10 þotan, sem Boeing kynnti við upphaf sýningarinnar, hafi verið leynivopnið sem gaf Boeing töluvert forskot í ár.

Boeing fékk pantanir í 147 eintök af Boeing 737 MAX 10 og þá voru flugfélög sem breyttu eldri pöntunum í 214 aðrar gerðir Boeing 737 MAX þotur yfir í 737 MAX 10.

Frá flugsýningunni í París

John Leahy, sölustjóri Airbus, segir að framleiðandinn hafi búist við færri pöntunum í ár sem gæti mögulega verið ástæða þess að Airbus hafði ekki yfirhöndina í ár eins og svo oft áður.

Leahy viðurkennir „sigur“ Boeing en segir að hann átti þó von á því að nýja Boeing 737 MAX 10 þotan hefði byrjað betur og bendir hann á að stór hluti pantananna hafi verið breytingar á pöntun úr Boeing 737 MAX 8 og 9 vélunum.

Leahy segir að Airbus horfi ekki á Boeing 737 MAX 10 sem einhverja þotu sem er að fara veita Airbus A321neo einhverja teljanlega samkeppni en segir að það sé greinilegt að Boeing ætli að koma á eftir þeim í verðstríði og setja þrýsting á verðlagið á vélunum þeirra.

Airbus náði þrátt fyrir það að tryggja sér pantanir á síðustu stundu í dag í tæpar 100 þotur frá AirAsia og tveimur flugfélögum í Íran, Zagros Airlines og Iran Airtour.

Richard Aboulafia, markaðssérfræðingur í flugmálum hjá Teal Group, segir að pantanirnar í ár á Paris Air Show hafi samt verið fleiri en menn þorðu að vona.

Sýningin sjálf í París stendur til 25. júní og lýkur því á sunnudag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga