flugfréttir

Nýr flugriti frá Airbus mun skjóta sér frá borði og fljóta á sjó

- Einn búnaður sem er bæði flugriti og hljóðriti

23. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:25

Nýju flugritarnir voru kynntir á flugsýningunni í París

Airbus hefur kynnt tvær nýjar tegundir af flugritum sem koma meðal annars með búnaði sem skýtur þeim úr flugvél í þeim aðstæðum þar sem flugslys á sér stað sem lætur búnaðinn fljóta á vatni.

Um tvennskonar búnað er að ræða. Annarsvegar nýja tegund af flugrita sem er bæði flugriti og hljóðriti í einum búnaði sem tekur upp 25 klukkustundir af upplýsingum og hljóðupptöku og hinsvegar sjálfskjótandi flugrita sem nefnist „Automatic Deployable Flight Recorder“ (ADFR).

Flugritinn verður bæði minni og léttari en hefðbundnir svörtu kassar og hljóðbúnaðurinn tekur upp 12 sinnum lengri hljóðupptöku (25 klst) en hefðbundnir hljóðritar í dag sem taka aðeins upp 2 klukkustundir af upplýsingum.

Búnaðurinn mun koma á markað árið 2019

Flug- og hljóðritinn, sem nefnist Cockpit Voice and Data Recorder (CVDR) verður ætlaður fyrir minni Airbus-vélar á borð við A320 á meðan Automatic Deployable Flight Recorder (ADFR) er sérstaklega hannaður fyrir Airbus-breiðþotur sem fljúga yfir úthöf á borð við Airbus A330, Airbus A350, risaþotuna A380 og einnig fyrir Airbus A321LR.

ADFR-ritinn kemur með neyðarsendi (Emergency Locator Transmitter) og mun hann senda boð á meðan hann flýtur á yfirborði sjávar en sleppibúnaður mun skjóta flugritanum frá borði við snertingu við vatn.

Búnaðurinn, sem er hannaður af tæknifyrirtækinu L3 Technologies og Leonardo DRS, verður fyrst komið fyrir í Airbus A350 þotunni, nánar tiltekið aftast í stélhluta vélanna, en búnaðurinn uppfyllir fyrirmæli frá Alþjóðaflugmálastofnunninni (ICAO) sem hefur mælt með búnaði sem auðveldar fyrir björgunaraðgerðir og leit að staðsetningu flugvélar sem hefur farist á hafi úti.

Bæði CVDR og ADFR flugritarnir nýju verða fáanlegir frá og með árinu 2019 á Airbus A350 og því næst verður þeim komið fyrir í aðrar tegundir Airbus-véla.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga