flugfréttir
Framleiðslu á Antonov An-48 í Rússlandi verður hætt
Antonov An-148 þota rússneska varnarmálaráðuneytisins
Rússar ætla að hætta að framleiða hina tveggja hreyfla, úkraínsku Antonov An-148 farþegaþotu eftir að lokið hefur verið við að setja saman tvær seinustu vélarnar.
Antonov An-148 kom á markaðinn árið 2009 og hefur hún verið framleidd bæði í Úkraínu og í Voronezh Aircraft Plant verksmiðjunum í Rússlandi en þotan flaug sitt fyrsta flug árið 2004.
„Það er verið að setja saman tvær seinustu vélarnar og eru örlög vélanna ráðin í Rússlandi
og munum við ekki framleiða fleiri eintök“, segir heimildarmaður við rússneska fréttamenn.
Aðeins hafa rúm 40 eintök verið smíðuð af vélinni á 8 árum af þeim 56 eintökum sem hafa verið
pöntuð en vélina er að finna í Rússlandi, Úkraínu, Norður-Kóreu og á Kúbu.
Antonov An-148 þota Air Koryo
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.