flugfréttir
Flugprófanir með MC-21 þotuna komnar á næsta stig
Irkut MC-21 í jómfrúarfluginu þann 28. maí sl.
Flugprófanir með rússnesku farþegaþotuna MC-21 eru komnar á næsta stig en flugvélaframleiðandinn Irkut lauk við seinustu frumprófanirnar sl. föstudag.
Á fyrsta stigi prófana voru gerðar tilraunir með stöðugleika og stjórnhæfni vélarinnar með
mismunandi stillingum auk þess sem prófanir voru gerðar með hjólabúnað vélarinnar.
Þá voru gerðar tilraunir með hreyfla og stjórntæki um borð sem voru prófuð í mismunandi
fluglagi í tilraunaflugi.
Gert er ráð fyrir að öllum verksmiðjuprófunum með MC-21 þotuna verði lokið í október í haust
en eftir það verður vélin ferjuð frá Irkutsk til Zhukovsky í Moskvu þar sem flughæfnisvottunarpróf
verða framkvæmd.
Framleiðandi vélarinnar gerir ráð fyrir að MC-21 þotan fái flughæfnisvottun í Rússlandi árið 2019
og ári síðar er von á vottun frá flugmálayfirvöldum í Evrópu (EASA).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.