flugfréttir
DA62 er fljúgandi lúxusjeppi og flaggskip Diamond
- Um 100 starfsmenn verða ráðnir í haust í verksmiðjurnar í Kanada
Diamond DA62 flugvélin
Diamond Aircraft mun í haust ráða 100 nýja starfsmenn sem munu koma til með að starfa í verksmiðjum framleiðandans í London í Ontario í Kanada vegna framleiðslu á Diamond DA62 flugvélinni.
Peter Maurer, framkvæmdarstjóri Diamond Aircraft, segir að DA62 sé flaggskip
framleiðandans og sé um að ræða eina glæsilegustu vél sem Diamond hefur framleitt.
„Þetta er í raun og veru fljúgandi lúxusjeppi og það er stór markaður fyrir vélina“, segir Maurer.
Starfsmenn Diamond eru um 2.000 talsins en um 170 starfa í Kanada og mun starfsmannafjöldinn
nálgast 300 manns á næsta ári.
Diamond DA62 er tveggja hreyfla skrúfuvél sem getur tekið allt að sjö manns auk flugmanns en
þróun vélarinnar hófst árið 2012 og átti hún upphaflega að nefnast DA52 en í júní árið 2014
var nafninu breytt í DA62.
Peter Maurer, framkvæmdarstjóri Diamond Aircraft
Í dag hafa 25 eintök verið smíðuð af Diamond DA62 vélinni og er stefnt á að smíða
60 til 62 vélar á ári til að uppfylla eftirspurnina en ein DA62 flugvél kostar 102 milljónir króna.
DA62 kemur í tveimur þyngdarútgáfum. „Evrópska“ vélin tekur fjóra farþega og hefur
hámarksflugtaksþunga (MTOW) upp á 2 tonn en „bandaríska“ útgafan tekur sex farþega og hefur MTOW
upp á 2.3 tonn.
Diamond segir að mjög vel hafi tekist til frá upphafi þróunar á DA62 og sé vélin í mjög
góðum þyngdarflokki þar sem töluvert er farið að birta til yfir markaðnum er kemur
að litlum einkaflugvélum.
Frá verksmiðjum Diamond í London
Diamond í Kanada hefur keypt framleiðsluréttinn frá Diamond Aircraft í Austurríki til að framleiða
DA62 í London í Ontario og þá mun Diamond í Kanda einnig sjá alfarið um framleiðslu á DA40 vélinni.
„Við sjáum fram á að framleiða allt að 100 flugvélar á ári á næstu árum og enn fleiri vélar í náinni
framtíð. Við þurfum að þjálfa nýtt starfsfólk og það tekur sinn tíma“, segir Maurer.
Diamond framleiðir einnig DA20 vélina sem er ein vinsælasta kennsluflugvél heims
en hún er mikið notuð m.a. af bandaríska flughernum og þá er hana bæði að finna hér á landi í kennsluflota Flugakademíu Keilis og hjá Geirfugli.
Í desember í fyrra keypti kanadískt útibú af kínverska fyrirtækinu Wanfeng Aviation stóran
hlut í Diamond í London en þau viðskipti blésu ferskum vindum inn í framleiðslu á DA20 og DA40
kennsluvélunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.