flugfréttir
Plássleysi að myndast á flugvellinum í Hong Kong
Frá Chep Lap Kok flugvellinum í Hong Kong
Chek Lap Kok flugvöllurinn í Hong Kong er óðum að fyllast en plássleysi er farið að skapast á vellinum sem er sá 8. stærsti í heimi þar sem hámarksnýtni hefur verið náð.
Chek Lap Kok flugvöllurinn var tekinn í notkun árið 1998 og tók hann við af hinum fræga
Kai Tak flugvelli sem var lokað í kjölfarið.
Frá því í mars í vor þá hefur flugvellinum tekist að bæta við 20 flugtökum og lendingum
á Chek Lap Kok við þær 1.150 flugtök og lendingar sem eiga sér stað á vellinum á hverjum degi.
Þrátt fyrir plássleysi þá er stefnt að því að fjölga daglegum flugtökum og lendingum upp í 1.200
fyrir árið 2020 sem er fjölgun upp á 50 flugferðir á dag til viðbótar.
Airbus A330 þota frá Cathay PAcific í flugtaki
Kínversk flugmálayfirvöld ætla að auka nýtni hvers afgreiðslupláss fyrir sig með hagræðingu
í notkun þeirra en í dag fara 420.000 flugvélar um Chek Lap Kok flugvöllinn á ári.
Flugmálayfirvöld hafa áður varað við því að of mikil flugumferð fari um flugvöllinn í Hong Kong
og hefur nú þegar verið komi með hugmyndir að færa fraktflug og einkaþotuflug á Zhuhai-flugvöllinn
sem er staðsettur í 62 kílómetra fjarlægð til vesturs.
Gert er ráð fyrir að 8% aukning verði á flugumferð um Chek Lap Kok flugvellinum á þessu ári
sem er m.a. tilkomið vegna aukinna umsvifa hjá Cathay Pacific sem hefur verið að stækka leiðarkerfið
sitt með nýjum flugleiðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.