flugfréttir
10 ár frá því Dreamliner-þotan leit dagsins ljós í fyrsta sinn
- Þotan sem slegið hefur met en þó ekki vandræðalaust
Fyrstu Dreamliner-þotunni var ýtt úr samsetningarsal í Everett þann 8. júlí árið 2007
10 ár eru síðan að fyrstu Dreamliner-þotunni var ýtt út úr samsetningarsal hjá Boeing í Everett en fyrsta vélin leit dagsins ljós þann 8. júlí árið 2007.
Yfir 30.000 starfsmenn Boeing auk starfsmanna annarra fyrirtækja, sem hafa framleitt
íhluti í vélina, fylgdust með athöfninni og þar af 15 þúsund starfsmenn Boeing sem voru
á staðnum.
Þá voru yfir 100 milljón áhorfendur sem fylgdust með er vélinni var ýtt út úr skýli sem er sögð hafa verið ein stærsta beina útsending á Netinu á þeim tíma hjá einu fyrirtæki.
Fyrsta Dreamliner-þotan, sem bar skráninguna N787BA, var nokkurn veginn
lítið annað en stórt flugvélamódel í stærðarhlutföllunum 1 á móti einum þar sem ekki
var búið að tengja stjórnkerfi vélarinnar en framundan tóku við sjö seinkanir
sem urðu til þess að vélin var ekki afhent fyrr en 4 árum síðar.
Seinkanir hjá birgjum, verkföll, vandamál með þyngd vélarinnar, hönnunarvandræði
og vandamál með Trent 100 hreyfilinn setti strik í reikninginn en loks í október árið 2011
fékk japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) fyrstu Dreamliner-þotuna afhenta.
Frá athöfninni er N787BA var ýtt úr skýli fyrir 10 árum síðan
Ekki fækkaði vandamálunum eftir að ANA byrjaði að fljúga vélunum því síðar kom
í ljós að afkastageta Dreamliner-vélanna var ekki að standast væntingar vegna þess
hversu þungar vélarnar voru og árið 2013 voru þær kyrrsettar út um allan heim
vegna vandamála með lithion-ion rafhlöður í rafgeymum.
Þrátt fyrir þessi vandamál þá hefur Dreamliner-þotan brotið blað í flugsögunni
þar sem flugfélög hafa náð að fljúga beint flug milli tveggja áfangastaða sem annars
hefði ekki verið hægt að öðru leyti og það með mjög sparneytnum hætti.
Boeing 787-8 var fyrsta eintakið sem afhent var árið 2011 en þremur árum síðar, eða
þann 8. júlí árið 2014, tók Air New Zealand við fyrstu Boeing 787-9 þotunni og í maí
í vor var fyrstu Boeing 787-10 vélinni ýtt úr skýli en Singapore Airlines mun fá fyrsta
eintakið af þeirri vél árið 2018.
Boeing hefur í dag afhent yfir 560 eintök af Dreamliner-þotunni til 38 flugfélaga
en ANA (All Nippon Airways) hefur flestar vélarnar eða 47 þotur í flotanum og þá
er United Airlines komið með 30 vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.