flugfréttir

Kennsluflugvél flaug á dróna í Ástralíu

12. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:02

Kennsluflugvélin skoðuð eftir lendingu í gær á Parafield-flugvellinum í Adelaide

Árekstur varð milli kennsluflugvélar og dróna í gær í Ástralíu en mögulega er um að ræða fyrsta atvikið í Ástralíu þar sem dróni og flugvél rekast saman en enn á þó eftir að staðfesta að um dróna hafi verið að ræða.

Flugmálayfirvöld í Ástralíu rannsaka nú atvikið en tilkynnt hafði verið um drónaumferð nálægt Parafield-flugvellinum í Adelaide skömmu fyrir atvikið en samkvæmt áströlskum lögum þá má ekki fljúga fjarstýrðu flygildi nær flugvelli en sem nemur 5,5 kílómetrum.

Kennsluflugvélin, sem er af gerðinni Scoata TB-10 Tobago, náði að lenda giftusamlega en það var flugkennari frá Flight Training Adelaide flugskólanum sem flaug vélinni er dróninn skall á henni.

„Við sáum ekkert blóð á vélinni sem er yfirleitt fyrstu ummerki að flogið hafi verið á fugl og ekki var tilkynnt um neina fugla nálægt vellinum en flugkennarinn telur að þetta hafi verið dróni“, segir starfsmaður flugskólans.

Starfsmenn frá ATSB skoða skemmdirnar á hægri væng vélarinnar í gær

Nokkrar dældir voru á væng vélarinnar sem uppgötvuðust eftir lendingu en flugkennarinn tilkynnti flugturninum um áreksturinn skömmu áður en hann lenti vélinni.

„Dróninn hefði geta farið í gegnum rúðu stjórnklefans eða lent á stjórnfleti sem hefði gert flugmanninum mun erfiðara fyrir að lenda vélinni“, segir starfsmaður flugskólans.

„Drónar eru að verða sífellt vinsælli og það er erfitt að koma auga á þá og nógu erfitt er að koma auga á aðrar flugvélar í fullri stærð“.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga