flugfréttir
HondaJet einkaþota rann út af braut í Chicago
Ljósmynd af þotunni þar sem hún endaði út af braut eftir lendingu
Einkaþota af gerðinni HondaJet rann út af braut í lendingu í gær á Midway-flugvellinum í Chicago.
Vélin rann út af brautinni og staðnæmdist á graslendi á flugvallarsvæðinu vinstramegin við brautarendann
með öll hjólin á grasinu nálægt grindverki vallarins.
Ekki er vitað hvað orsakaði atvikið en þotan var að koma frá Philadelphia þegar hún fór út af í lendingunni.
Slökkvilið auk sjúkrabíls mættu á vettvang en ekki var tilkynnt um slys á fólki.
Þotan er í eigu fjárfestingarfyrirtækisins Wilmington Trust í Delaware og var hún afhent frá HondaJet í maí á þessu ári.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.