flugfréttir
Kona lét lífið á St. Maarten í útblæstri frá þotu í flugtaki
- Féll með höfuðið utan í steinkant
Frá Maho Beach við flugvöllinn á St. Maarten
Kona lét lífið í gær á eyjunni St. Maarten í Karíbahafi er hún féll með höfuðið utan í steinkant eftir að hafa staðið fyrir aftan þotu sem var í flugtaki á Princess Juliana flugvellinum.
Flugvöllurinn á St. Maarten er frægur meðal flugáhugamanna víða um heim þar sem flugvélar
koma inn til lendingar í mjög lágri flughæð yfir Maho Beach ströndina.
Þá hafa einnig margir strandgestir stundað þá iðju að hanga á grindverki flugvallarins
og látið blásturinn frá hreyflunum þeyta sér næstum lárétt þegar vélarnar þoturnar fara í loftið.
Samkvæmt fréttum þá hékk konan í grindverkinu ásamt fleiri strandgestum en missti takið
og fauk aftur fyrir sig og með höfuðið í steinsteypublokkir við veginn sem skilur að grindverkið
og ströndina.
Ferðamenn við grindverkið fyrir aftan þotu sem er að hefja flugtak
Sjúkrabílar mættu á staðinn og var konan flutt á sjúkrahús í bænum en læknar náðu ekki
að bjarga lífi hennar.
Skilti við grindverk flugvallarins varar fólki við hættunni
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.