flugfréttir
Herferð Icelandair tilnefnd til fjögurra Euro Effie verðlauna
Skjáskot úr Stopover Buddy herferð Icelandair
Herferð Icelandair, Stopver Buddy, hlaut nýverið fjórar tilnefningar til Euro Effie auglýsingaverðlaunanna þar sem herferðin etur kappi við m.a. sænska ferðamálaráðið, Sodastream og Booking.com en það voru Íslenska auglýsingastofan og The Brooklyn Brothers í London sem unnu að herferðinni með Icelandair.
Icelandair Stopover Buddy herferðin tengdi farþega Icelandair við áhugavert og gestrisið starfsfólk fyrirtækisins, sem sýndu gestunum land og þjóð.
Flugfarþegar gátu skráð sig og óskað eftir ferðafélaga frá Icelandair eftir áhugasviði, tungumálakunnáttu og dagsetningum. Markaðssetning þjónustunnar fór aðallega fram á netinu og í gegnum almannatengsl en herferðin er ein farsælasta vefmarkaðsherferð Icelandair frá upphafi.
Hugmyndin bakvið herferðina spratt upp úr niðurstöðum könnunar sem sýndi að 80% bandarískra ferðamanna hafa áhyggjur af því að líta út eins og túristar
og að Bretar eyði 17 milljörðum punda meira en nauðsynlegt er í frí þar sem þekking þeirra á áfangastöðunum er takmörkuð.
Stopover Buddy var því kjörin lausn fyrir ferðamenn til þess að fræða þá betur um hvað Ísland sem áfangastaður hefur uppá að bjóða. Stopover-bókunum fjölgaði um 42% í kjölfar herferðarinnar og verðmæti fjölmiðlaumfjallana um Buddy-ferðir, herferðina og Icelandair var metið á yfir 250 milljón pund.
Icelandair hlaut tilnefningar í alls fjórum flokkum:
Brand Experience, sem verðlaunar óhefðbundna markaðsetningu og heildarupplifun sem vörumerki búa til fyrir viðskiptavini sína
David vs Goliath, sem er flokkur fyrir smærri fyrirtæki í stórum geirum
Leisure & Entertainment, þar sem ferðaþjónustu- og afþreyingarfyrirtæki etja kappi
Small Budget, þar sem sýnt er fram á árangur og kostnað undir ákveðnu hámarki
Buddy-herferðin hefur þegar hlotið alþjóðleg verðlaun, m.a. verðlaun þýsku ferðaþjónustunnar, Gullpálmann, árið 2016.
Sérstaða Effie-verðlaunanna felst ekki síst í því að þau verðlauna árangur herferða og eru dómnefndir jafnan skipaðar fagfólki með umfagnsmikla markaðs- og auglýsingareynslu. Þau eru með þeim virtustu í auglýsingaheiminum og skipa sér á stall með Cannes Lions verðlaununum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.