flugfréttir
Flugfélag skildi næstum allan farangurinn eftir í Balí
- Aðeins 14 farþegar fengu ferðatöskurnar við komuna til Ástralíu
Boeing 737-800 þota Malindo Air
Mikil óánægja ríkti meðal farþegar sem flugu með flugi Malindo Air í gær frá Balí til Brisbane en nánast enginn um borð fékk farangurinn sinn við komuna til Ástralíu þar sem í ljós kom að allar ferðatöskurnar voru skildar eftir.
Í ljós kom að vandamál var komið upp með þyngd vélarinnar fyrir flugtak á Balí og tók flugstjórinn þá ákvörðun að skilja
næstum allar ferðatöskurnar eftir en fram kemur að um fjórtán farþegar fengu töskurnar á meðan
farangur meðal 63 farþegar var skilinn eftir.
Tveggja tíma seinkun varð á brottför þar sem flugvirkjar unnu að vandamáli sem flugstjórinn
sagði að væri vandamál með hleðslu vélarinnar er kemur að leyfilegri þyngd.
Til stendur að senda allan farangurinn með næsta flugi frá Balí til Brisbane í dag.
Farþegar gripu í tómt er þeir ætluðu að sækja töskurnar af færibandinu í Brisbane
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.