flugfréttir
Nepal Airlines ætlar að fjölga A320 þotunum
- Panta tvær til viðbótar
Airbus A320 þota Nepal Airlines
Nepal Airlines ætlar sér að panta tvær Airbus A320 þotur til viðbótar frá verksmiðjum Airbus í Toulouse.
Nepal Airlines hefur nú þegar tvær A320 þotur í flotanum en sú fyrri var afhent til félagsins árið 2015 og sú seinni kom
í flotann í maí í vor.
Þá á félagið von á tveimur Airbus A320 vélum til viðbótar og mun félagið því hafa fjórar A320 þotur á næsta ári en alls
verða vélarnar sex ef félagið leggur inn aðra pöntun fyrir tveimur vélum eins og stefnt er að.
Vélarnar voru að hluta til pantaðar til að leysa af hólmi Boeing 757 vélar sem félagið hefur haft í flotanum en Nepal Airlines
á einnig von á tveimur Airbus A330-300 breiðþotum.
Nepal Airlines ætlar sér að fjölga Airbus A320 þotunum til að auka umsvif sín í flugi innan Asíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.