flugfréttir

Reglur um næturlendingar breytast á SFO í kjölfar atviks

- Tveir flugumferðarstjórar munu sjá um aðflugið á kvöldin

18. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:50

Flugturninn á flugvellinum í San Francisco

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ákveðið að breyta starfsháttum og reglugerðum er snúa að næturflugi um flugvöllinn í San Francisco í kjölfar atviks sem átti sér stað í júlí þegar litlu munaði að farþegaþota af gerðinni Airbus A320 frá Air Canada lenti á akbraut vallarins (taxiway).

Flugumferðarstjórar í San Francisco munu ekki lengur fá heimild til að gefa flugmönnum leyfi fyrir sjónflugslendingum á meðan hin flugbrautin, sem liggur samsíða brautinni sem Air Canada vélin átti að lenda á, er lokuð.

„Ef svipað ástand kemur upp er varðar lokun á hinni brautinni þá verður flugvélum gert að lenda eftir blindaðflugskerfi eða með aðstöð gervihnattabúnaðar og mun það sá til þess að vélarnar munu stilla sér upp í beinni aðflugslínu að réttri braut“, segir í tilkynningu frá bandarískum flugmálayfirvöldum.

Þotan frá Air Canada stefndi beint á fjórar flugvélar sem höfðu stillt sér upp á akbrautinni á leið í flugtak en vélin hætti við lendingu þegar flugmennirnir áttuðu sig á því að þeir voru að koma inn til lendingar á akbraut.

Flugvöllurinn í San Francisco

Þá kemur fram að farið verði fram á að tveir flugumferðarstjórar verði í turninum til þess að annaðst aðflug þar til mesta törnin er yfirstaðin á kvöldin og var sú reglugerð innleidd strax daginn eftir atvikið sem átti sér stað þann 7. júlí.

Flugmennirnir, sem flugu Air Canada vélinni, hafa sagt að þeir töldu að flugbrautin 28R væri 28L og héldu að taxiway C væri 28R samkvæmt Samgönguyfirvöldum Bandaríkjanna (NTSB) sem hafa rannsakað atvikið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga