flugfréttir
Norwegian sækir um leyfi fyrir 63 flugleiðum frá Argentínu
- Stefna á að tengja Buenos Aires við helstu stórborgir Evrópu
Umsókn Norwegian Air Argentina verður tekin fyrir þann 6. september næstkomandi
Norwegian hefur sótt um leyfir fyrir millilandaflugi á yfir sextíu flugleiðum frá Buenos Aires í Argentínu og þar af til fjórtán áfangastaða í Evrópu.
Undirbúningur hefur staðið yfir á fullu við stofnun Norwegian Air Argentina og ætlar flugfélagið norska að koma sterkt inn á markaðinn
í flugi milli Argentínu og Evrópu.
Þann 6. september næstkomandi mun samgönguráðuneyti Argentínu halda fund og úthluta leyfum fyrir flugleiðum til og
frá Argentínu og hefur Norwegian sótt um leyfi fyrir 63 leiðum til og frá landinu sem er það 8. stærsta í heimi er kemur að landsvæði.
Norwegian Air Argentina hefur m.a. sótt um leyfi fyrir flugi frá Buenos Aires til Kaupmannahafnar, Barcelona, Istanbul, London,
Malaga, Madríd, Mílanó, Mosvku, Oslóar, Prag, Parísar, Rómar, Stokkhólms og Zurich.
Þá hefur félagið einnig sótt um leyfi fyrir flugi til Buenos Aires frá áfangastöðum í Bólivíu, Chile, Uruguay, Venezúela, Kólombíu, Ecuador og Paraguay.
Ef Norwegian Air Argentina fær grænt ljós frá yfirvöldum í Argentínu mun félagið fá leyfi til þess að fljúga til þessara
áfangastaða án takmarkanna í 15 ár að minnsta kosti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.