flugfréttir
Icelandair mun fljúga til Berlínar
- Fljúga allan ársins hring á Tegel-flugvöllinn
Áætlunarflug Icelandair til Berlínar mun hefjast
Icelandair mun þann 3. nóvember í haust hefja flug til Berlínar sem er nýr áfangastaður hjá félaginu en flogið verður til Tegel-flugvallarins og verður flogið allan ársins hring.
Berlín verður 47. áfangastaður í leiðarkerfi Icelandair en flogið verður til borgarinnar þrisvar í viku til að byrja með og hefst sala farmiða fimmtudaginn 24. ágúst.
Flogið verður á föstudegi, sunnudegi og mánudegi fyrst um sinn, en gert er ráð fyrir að fjölga ferðum enn frekar næsta sumar.
„Berlín er fjórði áfangastaður okkar í Þýskalandi, auk Frankfurt, Munchen og Hamborgar, og mun styrkja leiðarkerfi okkar yfir Atlantshafið með því að bjóða farþegum upp á þægilega tengingu á milli Evrópu og Norður-Ameríku,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Oranienburger Strasse gatan í Berlín og sjónvarpsturninn í baksýn
„Berlín er stærsta borg Þýskalands og býr yfir merkilegri sögu, fjölbreyttu menningarlífi og líflegu næturlífi. Borgin hefur lengi verið vinsæl meðal Íslendinga, bæði til búsetu og heimsóknar, enda finna allir eitthvað sitt við hæfi þar. Það er því ánægjulegt að geta þjónustað þá landa okkar sem þangað sækja og við erum stolt af því að geta nú boðið bestu upplifunina í flugi milli Berlínar og Íslands,“ segir Birkir.
Farþegafjöldinn með Icelandair mun í ár fara yfir 4 milljónir
Icelandair hefur verið leiðandi í flugi og ferðaþjónustu á Íslandi í 80 ár. Leiðarkerfi félagsins er hugsað og skipulagt sem tenging á milli meginlands Evrópu og Norður-Ameríku og hefur margfaldast að umfangi frá árinu 2009.
Þá voru farþegar um 1,3 milljónir en á þessu ári er gert ráð fyrir að þeir verði um 4,2 milljónir. Í dag flýgur félagið til 18 áfangastaða í Bandaríkjunum og Kanada og 29 borga Evrópu og er stöðugt að styrkja leiðarkerfið og bjóða farþegum þægilegar ferðir og bestu þjónustuna.
Meðal annars býður félagið upp á yfir 600 klukkustundir af afþreyingu fyrir alla fjölskylduna í sætisbaki, þráðlaust net allt frá því stigið er um borð og þar til komið er í flugstöð og aukið sætabil.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.