flugfréttir
Kish Air í Íran pantar tíu Boeing 737 MAX þotur
- Undirbúa einnig pöntun í Airbus A320
McDonnell Douglas MD-82 þota Kish Air
Flugfélagið Kish Air í Íran hefur gert samkomulag við Boeing um pöntun á tíu Boeing 737 MAX þotum.
Framkvæmdarstjóri félagsins segir að fulltrúar Boeing hafi fengið leyfi til að semja um pöntun á vélunum
til Írans og tekur hann fram að með Boeing 737 MAX vélunum mun Kish Air geta hafið beint flug frá Íran
til Kína, London, Stokkhólms og suður til Sri Lanka.
Þá kemur fram að Kish Air sé einnig í viðræðum við Airbus um pöntun á sex Airbus A320 þotum.
Hvorki Boeing né Airbus hafa viljað tjá sig um pöntunina og samningaviðræðurnar.
Kish Air hefur í dag tvær Airbus A320 þotur í flotanum, tvær Airbus A321, þrjár Fokker 100 þotur og sjö
McDonnell Douglas MD-80 vélar.
Kish Air flýgur til 34 áfangastaða í Íran, Azerbaijan, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Georgíu, Omen, Tyrklandi, Úkraínu og í
Kuwait.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.