flugfréttir

Norwegian reynir að laða til sín flugmenn frá Air Berlin

- Atvinnuviðtöl munu fara fram í Berlín og í Dusseldorf

21. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:20

Stjórnklefi á Boeing 737 þotu

Norwegian mun halda atvinnuviðtöl í Berlín og í Dusseldorf en flugfélagið norska vonast til þess ráða til sín þá flugmenn sem hafa flogið fyrir Air Berlin sem lýsti yfir gjaldþroti í seinustu viku.

Skortur á flugmönnum er vandamál sem er farið að færast í vöxt um víðan heim og er algengt að flugfélög reyni að ráða til sín flugmenn frá flugfélagi sem hefur hætt rekstri eða orðið gjaldþrota.

Þrátt fyrir að Air Berlin muni halda áfram rekstri með tilkomu fés frá þýska ríkinu þá telur Norwegian að margir flugmenn muni leita á önnur mið eftir starfi hjá öðru flugfélagi.

„Norwegian/OSM Avaition Pilot Roadshow er opið fyrir alla flugmenn og fjölskyldur þeirra og þá sem vilja vita meira um flugfélagið. Þar munu áhugasamir fá svör við öllum þeim spurningum sem þeir hafa varðandi starf á Boeing 737 vélunum okkar“, segir í tilkynningu.

Norwegian segist bæði vera að leita að flugmönnum og flugstjórum og sérstaklega þeim sem hafa tegundaráritun á Boeing 737 en að vísu hefur Air Berlin engar Boeing 737 lengur í flota sínum þar sem félagið hefur eingöngu vélar frá Airbus í dag auk Bombardier Q400 véla.

Flugmenn, sem hafa flogið Boeing 737, verða að hafa 1.500 flugtíma að baki og þar af 500 tíma á Boeing 737-300 eða Boeing 737-800 og þar af verða þeir að hafa 150 tímar skráða á seinustu 12 mánuðum.

Umsækjendur verða að hafa leyfi til þess að starfa inna evrópska efnahagssvæðisins og hafa enskukunnáttu á fimmta stigi samkvæmt stöðlum ICAO.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga