flugfréttir

Icelandair mun hefja flug til Cleveland

- Fljúga til Cleveland allt árið frá maí árið 2018

22. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:52

Icelandair mun hefja flug til Cleveland í maí á næsta ári

Icelandair hefur ákveðið að hefja heilsársflug til bandarísku borgarinnar Cleveland á næsta ári en borgin er nítjándi áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu.

Flugið til Cleveland hefst í maí 2018 og flogið verður fjórum sinnum í viku. Sala farseðla hefst í september.

Cleveland í Ohio stendur við eitt af stóru vötnunum svokölluðu í Bandaríkjunum, Lake Erie, og er þekkt iðnaðarborg með um 2,2 milljónir íbúa. Borgin er einnig kunn fyrir kraftmikið lista- og íþróttalíf, en þar er meðal annars hið þekkta safn Rock and Roll Hall of Fame Museum. Körfuboltalið borgarinnar, Cavaliers, þekkja flestir áhugamenn um körfuknattleik, en með því leikur ein skærasta stjarna NBA, Lebron James.

„Cleveland er áfangastaður sem fellur vel að leiðakerfi okkar og þéttir og styrkir tengiflugið til og frá Evrópu“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. Með Cleveland fjölgar áfangastöðum Icelandair í 48 í heild.

Cleveland verður nítjándi áfangastaður Icelandair í Norður-Ameríku

Icelandair hefur verið leiðandi í flugi og ferðaþjónustu á Íslandi í 80 ár. Leiðarkerfi félagsins er hugsað og skipulagt sem tenging á milli meginlands Evrópu og Norður-Ameríku og hefur margfaldast að umfangi frá árinu 2009. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir en á þessu ári er gert ráð fyrir að þeir verði um 4,2 milljónir.

Í dag flýgur félagið til 18 áfangastaða í Bandaríkjunum og Kanada og 29 borga Evrópu og er stöðugt að styrkja leiðarkerfið og bjóða farþegum þægilegar ferðir og bestu þjónustuna. Meðal annars býður félagið upp á yfir 600 klukkustundir af afþreyingu fyrir alla fjölskylduna í sætisbaki, þráðlaust net allt frá því stigið er um borð og þar til komið er í flugstöð og aukið sætabil.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga