flugfréttir
Antonov An-2 fórst á flugsýningu í Moskvu
- Tveir sem voru um borð létust í slysinu
Verið var að fagna 70 ára afmæli Antonov An-2 vélarinnar þegar slysið átti sér stað
Tveir eru látnir eftir að tvíþekja af gerðinni Antonov An-2 fórst á flugsýningu í nágrenni Moskvu í dag.
Vélin var að taka þátt í sýningaratriði og fórst hún fyrir framan fjölda áhorfenda. Tveir voru
um borð í vélinni og létust þeir báðir en engann sakaði á jörðu niðri.
Flugsýningin fór fram á Balashikha-svæðinu, skammt austur af Moskvu, og var verið að heiðra 70 ára afmæli Antonov An-2
flugvélarinnar þegar slysið átti sér stað.
Antonov An-2 flaug sitt fyrsta flug þann 31. ágúst árið 1947 en yfir 18 þúsund eintök
voru smíðuð af vélinni en framleiðslu hennar lauk árið 2001.
Að sögn heimildarmanns þá er talið að flugmaðurinn hafi misst stjórn á vélinni í krappri beygju með þeim afleiðingum að hún steyptist til jarðar.
Flugsýningin var stöðvuð strax í kjölfar slyssins en lögregla segir að verið sé að vinna að rannsókn á því hvað olli slysinu.
Myndband af Instagram:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.