flugfréttir

Emirates fær tvær fyrstu SR22 G6 kennsluvélarnar frá Cirrus

7. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:12

Önnur Cirrus SR22 G6 kennsluvélin fyrir Emirates Flight Training Academy á flugi

Flugakademía Emirates hefur fengið afhentar tvær fyrstu Cirrus SR22 G6 kennsluvélarnar af þeim 22 sem pantaðar voru.

Nokkra daga tók að fljúga vélunum frá verksmiðjum Cirrus Aircraft í Minnesota til Dubai en afhendingarflugið var yfir 13.000 kílómetra langt.

Vélarnar fóru í loftið frá Duluth í Minnesota til Knoxville í Tennessee þar sem afhendingarmiðstöð Cirrus Aircraft er staðsett en þar fóru sérfræðingar frá framleiðandanum yfir vélina auk þess sem aðilar frá Emirates Flight Training Academy skoðuðu vélarnar fyrir brottför.

Loks kom að afhendingarfluginu sjálfu en vélarnar höfðu viðkomu á 11 flugvöllum á leiðinni í 10 löndum og þar á meðal á Íslandi en að meðaltali var flogið í 5 klukkustundir á dag.

Önnur Cirrus SR22 G6 kennsluvélin fyrir Emirates Flight Training Academy á flugi

Vélarnar, sem hafa skráninguna A6-CTA og A6-CTB, komu við í Portsmouth í New Hampshire, Sept Iles á Labrador, Iqaluit á Baffinseyju en flugið frá Nuuk til Reykjavíkur og áfram til Wick á Skotlandi voru lengstu leggir ferðarinnar.

Þaðan var flogið til Sywell, norður af Northampton á Englandi, áfram til Feneyja, Krítar, Aqaba í Jórdaníu, Bahrain og að lokum lent í Dubai. Allar flugferðirnar á leiðinni voru farnar í dagsbirtu.

Cirrus SR22 vélarnar verða burðarásinn í flugþjálfun Emirates á næstunni sem mun fara fram á Dubai World Central flugvellinum sem verður tekinn í notkun í nóvember í vetur.

Cirrus Aircraft hefur framleitt yfir 5.100 eintök af SR22 flugvélinni frá árinu 2001 en eitt eintaf af þessari flugvél kostar um 56 milljónir króna.

SR22 G6 er nýjasta SR22 vélin frá Cirrus (Generation 6) en miklar uppfærslur hafa verið gerðar með þessari útgáfu á vélinni sem kemur með nýrri stjórntækjum og nýjum siglingarljósum.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga