flugfréttir

Stærsta sumar í sögu Keflavíkurflugvallar

- Yfir 1 milljón farþega í júlí og aftur í ágúst

11. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:11

Boeing 757 þota Icelandair í lendingu á Keflavíkurflugvelli í sumar

Aldrei áður hafa eins margir farþegar farið um Keflavíkurflugvöll á einu sumri og því sem nú er senn á enda.

Ef litið er á tímabilið frá janúar til ágúst þá voru 5.954.761 farþegi sem fór um Keflavíkurflugvöll sem er 32,4% aukning frá sama tímabili í fyrra og er því um algjört met að ræða.

Fjöldinn er í takt við farþegaspá Isavia sem gefin var út í lok árs 2016 en þá var því spáð að 5.921.693 farþegar færu um völlinn á fyrstu 8 mánuðum ársins sem er einungis 0,54% færri en raunin varð.

Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi farþega verði á bilinu 8,7 - 8,8 milljónir árið 2017 sem yrði þá um 28% aukning frá árinu 2016. Skipting farþega er í samræmi við spár en um þriðjungur farþega flugvallarins eru tengifarþegar en aðrir farþegar skiptast í komu og brottfararfarþega.

Eins og undanfarin ár var sumarið annasamasti tíminn en sumarið (júní – ágúst) var það stærsta á flugvellinum hingað til.

Starfsemin á flugvellinum gekk mjög vel í sumar

Í fyrsta sinn í sögunni fóru yfir ein milljón farþega í gegnum flugvöllinn á einum mánuði og gerðist það í júlí og aftur í ágúst. Stærsti dagur sumarsins var 6. ágúst þegar 40.147 farþegar fóru í gegnum flugvöllinn en það er 19% fleiri farþegar en á stærsta deginum í fyrra sumar.

Í fyrsta sinn í sögu Keflavíkurflugvallar náði farþegafjöldinn einni milljón á mánuði sem átti sér stað í júlí og aftur í ágúst

Heilt yfir gekk umferð um flugvöllinn mjög vel í sumar og hafa þær afkastaaukandi framkvæmdir sem ráðist hefur verið í síðastliðin misseri skilað árangri. Biðtími í öryggisleit á flugvellinum var undir 5 mínútum hjá 88% farþega í ágústmánuði þrátt fyrir sögulegan fjölda farþega.

Flug oftar á réttum tíma

Þá voru flug almennt oftar á réttum tíma miðað við sama tímabil í fyrra. Í sumar ákvað Isavia í samráði við Icelandair, Primera og Wow air að bjóða uppá innritun frá 12 á miðnætti fyrir þá sem áttu bókað morgunflug. Nokkur fjöldi farþega nýtti sér þessa auknu þjónustu sem skilaði dreifðara álagi í innritun og öryggisleit.

Vetraráætlun Keflavíkurflugvallar er orðin opinber, en á tímabilinu nóvember til mars 2018 er gert ráð fyrir um 830 þúsund auka sætum í boði frá sama tímabili í fyrra, eða um 27% aukning. Heildar framboð flugsæta verður um 3,8 milljónir í vetur en var um 3 milljónir síðastliðinn vetur. 

Alls verða það 15 flugfélög sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli í vetur til 69 áfangastaða.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga