flugfréttir
Myndband: Cessna brotlenti á bílastæði í Connecticut
- Slapp með minniháttar áverka
Vélin brotlenti á bílastæði við tæknifyrirtæki við hlið flugvallarins
Betur fór en á horfðist þegar eins hreyfils flugvél af gerðinni Cessna 172 brotlenti á bílastæði í bænum Plainsville í Connecticut í Bandaríkjunum í dag skömmu eftir flugtak.
Flugslysið náðist á myndband úr öryggismyndavél þar sem sjá má hvar vélin snýst er hún fer utan í tré áður áður en hún skellur
niður á bílastæðið.
Einn flugmaður var sá eini sem var um borð í vélinni og var hann fluttur
á sjúkrahús en í ljós kom að meiðsl hans voru minniháttar.
Sjónarvottur að slysinu sagðist hafa séð vélina koma á móti sér úr undarlegri átt og sagðist hafa vitað að eitthvað væri
að þar sem vélin vaggaði vængjum og var á óvenju lágum hraða.
Vélin var af gerðinni Cessna 172
Vélin, sem var 26 ára gömul, smíðuð árið 1981, var í eigu flugskólans Interstate Aviation Inc. í Plainsville.
Vélin brotlenti á bílastæði sem tilheyrir tæknifyrirtækinu Carling Technologies sem er staðsett aðeins 200 metrum
vestan við miðja flugbrautina.
Þetta er áttunda flugslysið í Connecticut á þessu ári í einkaflugi en alls hafa sex látist á árinu í flugslysum í fylkinu.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.