flugfréttir

Fyrsta A320 flugvélin endurmáluð á 30 ára afmælinu

- Verður færð á Aeroscopia-flugsafnið í Toulouse

12. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:30

F-WWAI komin aftur í sína upprunalegu Airbus-liti eins og hún leit út á níunda áratugnum

Fyrsta Airbus A320 þotan sem Airbus smíðaði árið 1987 hefur verið endurmáluð í sínum upprunalegu litum eins og hún leit út þegar vélin var frumsýnd fyrir 30 árum síðan.

Airbus ákvað að heiðra A320 þotuna á 30 ára afmæli sínu með því að koma henni aftur í verksmiðjulitina en vélin hefur einnig fengið sína upprunalegu skráningu sem var „F-WWAI“.

Vélin verður færð á Aeroscopia-flugsafnið í Toulouse þar sem hún verður til sýnis almenningi.

Fyrsta Airbus A320 þotan (MSN001) flaug sitt fyrsta flug þann 22. febrúar árið 1987 en í dag eru yfir 7.700 Airbus A320 þotur í umferð í heiminum.

Airbus A320 var hönnuð til að veita Boeing 737 samkeppni og var vélin fyrsta farþegaþotan til að koma með „fly-by-wire“ kerfinu en á sama tíma var Boeing að koma með á markaðinn „Next Generation“ útgáfuna af Boeing 737 þotunni sem þá hafði verið á flugi í 20 ár.

Airbus notaði A320 þotuna í flugprófanir alveg fram til sumarsins 2016 en vélin var seinustu notuð við tilraunir með „Sharklets“ vængenda.

Alls hefur Airbus selt 13.251 eintak af Airbus A320 þotunni frá upphafi en Air France var fyrsta flugfélagið til að taka vélina í notkun og var jómfrúarflugið flogið þann 18. apríl árið 1988.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga