flugfréttir
Jetstar býður farþegum upp á að fljúga fyrst og borga seinna
Flugvélar Jetstar flugfélagsins
Ástralska flugfélagið Jetstar mun á næstunni bjóða farþegum upp á að greiða fargjaldið eftir að þeir hafa flogið með félaginu.
Jetstar hefur gert samning við fyrirtækið Afterpay sem býður upp á „eftir-á greiðsluþjónustu“ en í samstarfi við flugfélagið munu farþegar „fljúga núna - borga seinna“.
Í fyrstu verður aðeins hægt að nýta sér þjónustuna í innanlandsflugi í Ástralíu en mögulega
verður skoðað að bjóða farþegum á að greiða fargjaldið einnig eftir á í millilandaflugi.
Þjónusta Afterpay er viðskiptavinum að kostnaðarlausu en 4% þóknunargjald er rukkað af því fyrirtæki sem á í hlut.
Þjónustan er fyrst og fremst markaðsett fyrir ungt fólk en Jayne Hrdlicka, framkvæmdarstjóri Jetstar, segir
að félagið sé mjög spennt fyrir að prófa þessa nýjung.
„Markmiðið okkar er að gera fleiru fólki kleift að fljúga til fleiri áfangastaða og oftar“, segir Hrdlicka.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.