flugfréttir
Þotu frá Wizz Air snúið við til Keflavíkur vegna elds um borð
Um borð í Airbus A320 þotu Wizz Air / Myndin tengist ekki fréttinni
Farþegaþotu frá Wizz Air var snúið við til Keflavíkurflugvallar á áttunda tímanum í kvöld eftir að í ljós kom að eldur var um borð á salerni vélarinnar.
Vélin, sem er af gerðinni Airbus A320, fór í loftið frá Keflavík áleiðis til Wroclaw í Póllandi en þegar hún
var komin í 31.000 feta hæð yfir Mýrdalsjökul klukkan 19:23 var henni snúið við.
Hæsta viðbúnaðastig var sett í gang á Keflavíkurflugvelli og var slökkvilið og björgunarsveit í viðbragðsstöðu.
Vélin lenti aftur í Keflavík klukkan 19:49 og gekk lendingin vel fyrir sig en ekki var óskað eftir aðstoð
slökkviliðsins eftir að vélin lenti.
147 farþegar voru um borð í vélinni. Eldsupptök eru ókunn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.