flugfréttir

Skoða beint flug milli Seattle og Vancouver með sjóflugvél

- Mikill áhugi fyrir fljótari flugsamgöngum milli borganna tveggja

13. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 21:39

Sjóflugvél í flugtaki frá Lake Union vatni í Seattle

Svo gæti farið að hægt verði að fljúga með sjóflugvél milli Vancouver og Seattle en flugfélagið Kenmore Air og Harbour Air í Kanada eur að íhuga að hefja áætlunarflug milli borganna tveggja.

Kenmore Air yfir 70 ára gamalt flugfélag sem hefur flogið farþegum með litlum, eins hreyfils flugvélum, milli staða um norðvesturhluta vesturstrandar Bandaríkjanna frá árinu 1946 en félagið býður einnig upp á útsýnisflug og leiguflug.

Til greina kæmi að tengja Bresku-Kólumbíu við Lake Union vatnið nálægt miðbæ Seattle þar sem hjarta tækniðnaðarins í borginni er staðsett.

Töluverður áhugi er fyrir sjóflugi milli Seattle og Vancouver

Margir aðilar sem og viðskiptamenn hafa beðið eftir beinu flugi milli miðborga Vancouver og Seattle svo hægt sé að ferðast með skjótum hætti milli miðkjarna þeirra án þess að fara um stóru alþjóðaflugvellina sem lengir ferðatímann enn frekar.

Vonast er til þess að tilkynnt verði um sjóflug milli Vancouver og Seattle fyrir lok ársins

Flugfloti Kenmore Air samanstendur af sjóflugvélum á borð við Cessna Caravan, DHC-2 Beaver, DHC-3 Otter, Piper PA-18 Super Cub og þá hefur félagið einnig Cessna 180 flugvélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga