flugfréttir
Frestur til að bjóða í Air Berlin rennur út á hádegi
Air Berlin varð gjaldþrota í ágúst eftir að Etihad Airways tilkynnti að það myndi slíta samstarfinu við félagið
Frestur til að leggja inn tilboð í hið gjaldþrota flugfélag, Air Berlin, rennur út á hádegi í dag að íslenskum tíma.
Næstkomandi fimmtudag (21. september) verður farið yfir þau tilboð sem borist hafa en meðal þeirra
sem hafa boðið í rekstur og eigur Air Berlin eru easyJet, Niki Lauda, stofnandi Lauda Air og Niki, Thomas Cook og
Lufthansa.
Þá hefur fjárfestirinn Hans Rudolf Woehrl gert tilboð í félagið upp á 63 milljarða en Lufthansa þykir þó
vera sigurstranglegast. Ákvörðun um hver muni eignast Air Berlin verður tekin
þann 25. september þegar gjaldþrotanefnd mun fara yfir tilboðin.
Með í kaupunum fylgja 8.500 starfsmenn, 140 flugvélar og verðmæt lendingar- og afgreiðslupláss
á stærstu flugvöllum Þýskalands.
Ryanair hefur hinsvegar dregið sitt tilboð til baka þar sem Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri félagsins, segist
ósáttur varðandi hvernig staðið er að uppboðinu og telur hann að séð verði til þess að Lufthansa muni
eignast félagið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.