flugfréttir
Felldu niður 82 flug þar sem of margir flugmenn eru í sumarfríi
- Gerðu mistök við áætlunargerð yfir sumarleyfi áhafna
Tvær af þeim 398 Boeing 737-800 þotum sem Ryanair hefur í flotanum
Ryanair þurfti í gær að aflýsa 82 flugferðum þar sem mistök urðu við áætlunargerð vegna sumarleyfis flugmanna.
„Það varð klúður við gerð á áætlun vegna sumarleyfa flugmanna og erum við að vinna
hörðum höndum að því að lagfæra starfsmannamálin“, segir Kenny Jacobs, markaðsstjóri
Ryanair.
Ryanair er skyldugt af írskum flugmálayfirvöldum til að láta allt sitt starfsfólk
taka út sumarfrí á tímabilinu
1. janúar fram til nóvember áður en vetraráætlun
félagsins tekur í gildi.
Vegna mikilla anna í sumar þá þarf félagið að láta fleiri flugmenn og áhafnir taka út
sumarfríið í haust og er ekki nægur mannskapur til að starfa um borð í öllum þeim 398 Boeing 737-800 þotum sem félagið hefur í flota sínum.
Félagið tilkynnti fyrir helgi að Ryanair þyrfti að fella niður um 40 til 50 flugferðir á dag næstu
sex vikurnar til að koma til móts við kröfur flugmálayfirvalda á Írlandi.
„Aðeins fleiri flugferðir“ voru felldar niður í gær eða helmingi fleiri en þær 40 á dag vegna mistaka
þar sem fleiri flugmenn voru enn í sumarfríi í gær en gert var ráð fyrir.
Þar sem félagið þarf að fella niður allt að 50 flugferðir á dag næstu 6 vikurnar mun það hafa áhrif á allt að 385.000
farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.