flugfréttir
Fundu 4 kíló af gulli undir sæti á Boeing 737 þotu
Gullið fannst inn í sæti um borð í Boeing 737-800 farþegaþotu frá flugfélaginu US-Bangla Airlines í Bangladesh
Um fjögur kíló af gulli fundust í morgun í Dhaka í Bangladesh um borð í farþegaþotu sem komið hafði verið fyrir undir einu sæti vélarinnar.
Það voru tollayfirvöld í Bangladesh sem fundu gullið en um er að ræða 40 gullstangir sem voru í svartri
tösku sem komið hafði verið fyrir inn í sessunni undir einu sætinu á Boeing 737-800 þotu hjá flugfélaginu US-Bangla Airlines.
Vélin lenti í Dhaka í morgun eftir áætlunarflug frá Singapore þegar gullið fannst en það vegur 4,64 kíló og er verðmæti
þess talið vera yfir 20 milljónir króna.
Gullið fannst í kjölfar ábendingar sem barst en enn hefur enginn verið handtekinn vegna málsins sem er til rannsóknar.
Boeing 737-800 þota US-Bangla Airlines
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.