flugfréttir
Horizon fellir niður áfangastað vegna skorts á flugmönnum
- Fresta afhendingum á nýjum Embraer E-175 þotum
Bombardier Dash-8 Q400 flugvél Horizon Air
Bandaríska flugfélagið Horizon Air hefur tilkynnt að félagið muni hætta að fljúga milli Colorado Springs og Seattle vegna skorts á flugmönnum.
Horizon Air hefur átt í erfiðleikum með að finna hæfa flugmenn til að fljúga þeim Bombardier Dash-8 Q400
og Embraer E-175 vélum sem félagið hefur í flotanum en þetta er í fyrsta sinn sem félagið fellir niður áfangastað vegna skorts á flugmönnum.
Horizon Air þurfti í mars að fella niður 318 flugferðir vegna flugmannaskorts og fækka flugferðum
í júlí þar sem ekki var nægilegur fjöldi flugmanna til að fljúga vélunum.
Þá tilkynnti félagið fyrr í þessum mánuði að búið væri að fresta afhendingum á nýjum E-175 þotum
vegna ástandsins en félagið gerir ráð fyrir að skortur verði á flugmönnum alveg fram á næsta ár.
Horizon Air átti að fá þrjár Embraer E-175 þotur afhentar í haust og þrjár eftir áramót en þær verða
ekki afhentar eins og til stóð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.