flugfréttir
Bjóða flugmönnum 1,5 milljón í bónus í skiptum fyrir sumarfrí
- Margir flugmenn ætla hafna tilboðinu
Boeing 737 þotur Ryanair á flugvellinum í Barcelona
Ryanair hefur brugðið til þess ráðs að bjóða öllum þeim flugmönnum, sem eru í sumarfríi, bónusgreiðslu upp á 1,5 milljón króna fyrir að bæta við sig 10 vinnudögum í þeim tilgangi að draga úr þeirri krísu sem framundan er hjá félaginu.
Ryanair viðurkenndi á dögunum að hafa gert mistök við áætlunargerð sumarleyfa starfsmanna
og þarf félagið að fella niður allt að 50 flugferðir á dag út október þar sem ekki er nægur fjöldi
flugmanna til að fljúga vélunum þar sem margir þeirra eru í sumarfríi.
Félagið sendi út tilkynningu sl. mánudag til flugmanna þar sem félagið býður flugstjórum 1,5 milljón króna
bónusgreiðslu fyrir að stytta sumarleyfið um 10 daga og fljúga í staðinn og
þá er flugmönnum (first offircers) boðnar 765.000 krónur fyrir 10 aukadaga.
Ryanair hefur sagt að ástæða þess að félagið þurfi að fella niður flugferðir sé vegna
sumarleyfa en talið er að stór ástæða þess sé hinsvegar sú að margir flugmenn hjá Ryanair
eru að yfirgefa félagið og gangast til liðs við Norwegian.
Ryanair hefur boðið flugstjórum 1,5 milljón króna bónusgreiðslu
til að stytta sumarleyfið sitt um 10 daga
Fram kemur að flugmenn hjá Ryanair í Dublin séu að íhuga að hafna tilboði félagsins um
bónusgreiðslur og þá ætla þeir flugmenn Ryanair, sem eru staðsettir á Ítalíu, einnig að hafna
tilboðinu.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að mögulega muni félagið bregða á það
ráð að svipta flugmenn sumarleyfisdögum sínum en í ráðningarsamningi flugmanna kemur fram
hægt sé að afturkalla sumarleyfi við vissar aðstæður.
Sagt að margir flugmenn séu á förum frá Ryanair
Þá hefur Ryanair einnig haft samband við þá flugmenn sem hafa sótt um störf hjá félaginu
en fengu ekki vinnu og er þeim boðið að hefja störf í dag til að fylla í skarðið.
Þar sem félagið þarf að fella niður allt að 50 flugferðir á dag næstu sex vikurnar þá mun það
hafa áhrif á tæp 400.000 farþega og gæti félagið þurft að greiða allt að 2,5 milljarð króna
í skaðabætur til þeirra.
„Það eru allir að reyna að hætta hérna - Og það á líka við þá sem hafa starfað hérna í 20 ár þar
sem þetta er hræðilegt fyrirtæki að vinna fyrir“, segir einn starfsmaður Ryanair.
Sagt er að margir flugmenn séu að nýta sér aðstæðurnar sem eru komnar upp til að yfirgefa
Ryanair eftir að hafa lifað í mörg ár í ótta við að missa vinnuna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.