flugfréttir
Afhendingu á fyrstu KC-46 frestað fram á næsta ár
Boeing KC-46 Pegasus eldsneytisflugvélin byggir á Boeing 767 þotunni
Afhendingu á fyrstu KC-46 Pegasus eldsneytisflugvélinni mun frestar fram á næsta ár en til stóð að afhenda fyrsta eintakið til bandaríska flughersins á þessu ári.
Ástæðan er sögð vera vegna vandamála sem komið hafa upp varðandi breytinga sem gerðar voru á vélinni en upphaflega stóð til að afhenda
fyrstu KC-46 þotuna mun fyrr.
Aðili, sem kunnugur er málinu, segir að hæpið sé að hægt verði að afhenda vélina á þessu ári og í gær
kom fram á herráðstefnu, sem fram fór í Washington, að vonast væri til að bandaríski herinn gæti fengið
fyrstu KC-46 þotuna snemma eftir áramót.
Flest vandamálin hafa orðið á áfyllingarkerfi sem setur eldsneyti á aðrar flugvélar á flugi en bandaríski flugherinn
þarf á yfir 170 Boeing KC-46 Pegasus þotum að halda. Andvirði samningsins á KC-46 vélunum til bandaríska flughersins er metinn á 4.268 milljarða króna.
Talið er að fyrsta KC-46 eldsneytisflugvélin verði afhent til bandaríska flughersins í febrúar 2018
Þau vandamál sem komið hafa upp hafa seinkað afhendingum um 14 mánuði en búið er að smíða sex eintök sem
eru nú í tilraunarflugi og þá er verið að smíða 30 þotur til viðbótar.
KC-46 bíður þess að fá vottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.