flugfréttir
Ekkert flugslys meðal flugfélaga í Afríku árið 2016
- Fyrsta flugslysalausa árið í Afríku í meira en áratug
Afríka hefur verið þekkt sem sú heimsálfa þar sem öryggi í flugi er sem mest ábótavant en svo gæti verið að breyting sé að verða á því
Ekkert flugslys í áætlunarflugi í Afríku var skráð í fyrra en fram kemur að þetta sé í fyrsta sinn í heilan áratug sem ekkert flugslys verður á heilu ári meðal afrískra flugfélaga sem eru aðilar að alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA).
Talið er að þessu megi þakka átaki um bætt öryggi í flugi til að koma til móts við kröfur
rekstaröryggisverkefnis á vegum alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA) sem nefnist IOSA sem
stendur fyrir Operational Safety Audit.
Þetta kom fram á African Travel Market ferðaráðstefnunni sem fram fór í Lagos í Nígeríu
í seinustu viku.
Öll flugfélög í heiminum, sem eru meðlimir í IATA, eru aðilar að IOSA verkefninu og verða þau að
vera virkir þátttakendur í því til að viðhalda aðild sinni að IATA.
Ikechi Uko, stofnandi African Travel Market, segir að það sé vel hægt að fagna því að ekkert flugslys
hafi átt sér stað í farþegafluginu í Afríku árið 2016 en þar á undan hafði Afríka verið skráð
meðal þeirra svæða í heiminum sem hafa versta flugöryggið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.