flugfréttir

Berlínarbúar hafa kosið með Tegel-flugvellinum

- 56% vilja flugvöllinn áfram eftir að Brandenburg opnar

25. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:26

Flugstöðin á Tegel-flugvellinum í Berlín í maí á þessu ári

Berlínarbúar hafa kosið með áframhaldandi opnun Tegel-flugvallarins í Berlín en kosið var um framtíð flugvallarins í gær á sama tíma og þýsku þingkosningarnar fóru fram.

56,1 prósent kjósenda kusu með því að Tegel-flugvöllurinn verði starfræktur áfram eftir að Brandenburg-flugvöllurinn verður tekinn í notkun en 41,7% kusu á móti því að flugvöllurinn verði hafður opinn áfram.

Til hefur staðið að Tegel-flugvellinum verði lokað sex mánuðum eftir að Brandenburg-flugvöllurinn opnar en vegna fjölmargra vandamála þá hefur opnun hans verið frestað nokkrum sinnum frá árinu 2011.

Niðurstaða kosningarinnar er samt ekki bindandi samkvæmt lögum en niðurstaðan er þvert á áætlanir ríkisstjórnarinnar sem hefur gert ráð fyrir að loka Tegel-flugvellinum.

991.832 Berlínarbúar kusu með flugvellinum, 737.216, kusu á móti honum og 39.735 sátu hjá og tóku ekki afstöðu til flugvallarins í kosningunum.

Telja að Berlín muni þurfa tvo flugvelli

Herferðin „Save Tegel“ hefur staðið yfir í nokkra mánuði þar sem barist hefur verið fyrir því að flugvellinum verði ekki lokað en fjölmörgum Berlínarbúum hefur líkað vel við hversu stuttar samgöngur eru frá flugvellinum til miðborgarinnar.

Borgarstjórn Berlínar var alfarið á móti því að almenningur fengi að kjósa um flugvöllinn þar sem til hefur staðið að nýta landsvæðið undir menntasetur, tækniháskóla og íbúðarhverfi.

Mögulega gæti Brandenburg-flugvöllurinn opnað árið 2019 en margir hafa sagt að líklega verði hann orðin of lítill og því nauðsynlegt fyrir Berlín að hafa annan flugvöll þar sem BER mun ekki koma til með að anna allri flugumferðinni til borgarinnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga