flugfréttir
Sjóflugvél hlekktist á í lendingu á Maldívíeyjum
Engin alvarleg slys urðu á fólki er Twin Otter sjóflugvélinni hlekktist á í lendingu
Sjóflugvél af gerðinni de Havilland DHC-6-300 Twin Otter hlekktist á í lendingu á sjóflugvellinum í Male á Maldívíeyjum í gær.
Vélin var að koma frá Dhaalu-eyjaklasanum með 15 farþega innanborðs og þriggja manna
áhöfn þegar vélin lenti harkalega á vatninu með þeim afleiðingum að hún endaði á hvolfi.
Þeir sem voru um borð í vélinni náðu að koma sér frá borði en einn áhafnarmeðlimur var
fluttur á sjúkrahús með minniháttar meiðsl á meðan aðrir sluppu án meiðsla.
Flugfélagið Trans Maldivian segir í tilkynningu að flugmennirnir misstu stjórn á vélinni vegna veðurs sem varð til þess að hún brotlenti í sjónum.
Yfirvöld á Maldívíeyjum rannsaka nú atvikið sem er flokkað sem slys en flugvélin er töluvert skemmd.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.