flugfréttir
Brotlenti nálægt minningarathöfn um flugslysið í Andesfjöllum
- Eftirlifendur flugslyssins árið 1972 urðu vitni að því er Piper Cub fór í sjóinn
Flak vélarinnar var dregið úr sjónum og upp á land. Flugmaður vélarinnar synti í land en farþegi hans lét lífið
Flugvél af gerðinni Piper Cub brotlenti í sjónum skammt undan borginni Montevideo í Uruguay sl. sunnudag, skammt frá sextán manna hópi eftirlifenda sem lifðu af flugslysið í Andesfjöllum árið 1972 sem var samankomin til að minnast flugslyssins.
Flugslysið í Andesfjöllum er eitt þekktasta flugslys sögunnar en þann 13. október árið 1972
fórst Fokker Fairchild flugvél eftir að hafa flogið á fjall í Andesfjöllunum á leið
sinni frá frá Montevideo með rugby-lið
innanborðs sem átti að spila leik í Santiago í Chile.
29 manns létu lífið í slysinu en þeir sextán, sem komust lífs af, komu saman á sunnudag
til að minnast þess að 45 ár eru liðin frá slysinu.
Hópurinn sem lifði flugslysið af í Andesfjöllum árið 1972 varð vitni að flugslysinu á sunnudag
Hópur þeirra sextán einstaklinga, sem lifði slysið af, var að grilla á ströndinni skammt
undan Montevideo og varð fólkið vitni að því er Piper Cub vélin fór í sjóinn í um 400 metra
fjarlægð frá fjöruborðinu.
Rodrigo Artagaveytia, flugmaður vélinnar, lifði slysið af ein einn farþegi, sem var með honum í vélinni, lést og
fann björgunarlið lík hans daginn eftir.
Farþeginn sem lét lífið hét Fernando González Foretic en hann var læknir og hafði
starfað fyrir rugby-liðið í Chile en hann, og flugmaðurinn, var hluti af hópnum, sem
hafði hisst til að minnast flugslyssins í Andesfjöllum.
Flugslyssins hefur verið minnst árlega sl. 44 ár og hefur minningarathöfn farið fram
til skiptist í Uruguay og í Chile.
Flugmaðurinn á Piper Cub vélinni náði að synda í land. Orsök slyssins eru enn ókunn.
Næstkomandi föstudag, 13. október, verða 45 ár liðin frá flugslysinu í Andesfjöllum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.