flugfréttir
Delta ætlar ekki að borga 300 prósenta refsitolla
- Vonast til að tillaga um refsitolla á Bombardier verði vísað frá
Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines
Delta Air Lines hefur lýst því yfir að félagið ætli sér ekki að verða við kröfum stjórnvalda í Bandaríkjunum sem hafa farið fram á að þau flugfélög, sem hafa pantað CSeries-þoturnar frá Bombardier, skuli greiða 300 prósenta refsitolla.
Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines, sagði að þessi fyrirmæli frá ríkisstjórn
Bandaríkjanna væru út í hött og tók hann fram að Delta myndi ekki greiða slíka tolla.
„Við munum ekki greiða þessi refsigjöld og það er alveg á tæru“, sagði Bastian en
stjórnvöld í Bandaríkjunum saka Bombardier um að hafa selt CSeries-þoturnar nýju langt
undir kostnaðarverði til Bandaríkjanna til að ná forskoti frá Boeing.
Bastian segir að Delta muni taka við 75 eintökum af CSeries-þotunum en tók fram að einhver
seinkun gæti orðið á afhendingum á meðan refsitollamálið er í gangi.
Forsetisráðherrar Kanada og Bretlands hafa blandast í deiluna sem verður
af öllum líkindum tekin fyrir á þinginu á næstunni.
Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna á enn eftir að samþykkja tillöguna með refsitollanna og er vonast
til að niðurstaða í málinu verði komin eftir áramót.
Bombardier og Delta Air Lines vonast til þess að tillögunni verði hafnað og vísað frá á þeim forsendum
að innflutningur á CSeries-þotunum á bandarískan markað hafi ekki nein áhrif á Boeing.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.