flugfréttir
Jómfrúarflug Airbus A330neo verður á fimmtudag
Airbus A330-900 tilraunarþota Airbus
Airbus hefur tilkynnt um að fyrsta Airbus A330neo tilraunarþotan muni fljúga jómfrúarflugið sitt næstkomandi fimmtudag, þann 19. október.
Vélin, sem kemur með Trent 7000 hreyflum, mun fara í loftið frá Toulouse og
er um lengri gerðina að ræða, Airbus A330-900, en vélin verður einnig framleidd
í styttri útgáfu sem er Airbus A330-800.
TAP Portugal verður fyrsta flugfélagið til að fá Airbus A330neo afhenta en ellefu
flugfélög og viðskiptavinir hafa pantað 212 eintök af A330neo og þar á meðal
WOW air sem mun fá fjórar A330-900 þotur afhentar.
Allar þær pantanir sem Airbus hefur fengið í Airbus A330neo hafa verið gerðar
í A330-900 fyrir utan Hawaiian Airlines sem er eina flugfélagið sem hefur pantað
Airbus A330-800.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.