flugfréttir
Wizz Air mun sækja um breskt flugrekstrarleyfi
- Stefna á að skrá nokkrar þotur í Bretlandi
Airbus A320 þota Wizz Air
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air ætlar að freista þess að sækja um breskt flugrekstrarleyfi en með því gæti félagið sett upp bækistöðvar á Bretlandi.
Wizz Air ætlar sér að skrá einhverjar þotur í flota sínum á breska skráningu og er stefnt
á að hefja flug frá breskum bækistöðvum til meginlands Evrópu í mars árið 2018.
Félagið hefur staðfest að félagið ætlar sér að freista þess að nota það tækifæri sem skapast hefur á markaðnum
með útgöngu Breta úr Evrópusamstarfinu.
Með stofnun dótturfélags, sem mun kallast Wizz Air UK, mun félagið ráð til sín breska
flugmenn og áhafnir en til stendur að koma upp bækistöð á Luton-flugvellinum þar sem
félagið hefur nú þegar starfsstöð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.