flugfréttir

Bellew aftur til Ryanair - Hefur sagt upp hjá Malaysian

- „Mig langar bara að fara aftur heim“

23. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:51

Peter Bellew, framkvæmdarstjóri Malaysia Airlines, starfaði hjá Ryanair frá árinu 2006 til 2015

Ryanair hefur tekist að ná aftur til sín fyrrverandi rekstrarstjóra félagsins, Peter Bellew, sem í dag er framkvæmdarstjóri Malaysia Airlines, en hann hefur nú tilkynnt uppsögn sína hjá malasíska félaginu eftir aðeins rúmt ár í framkvæmdarstjórastólnum í Malasíu.

Malaysia Airlines mun því missa á næstunni framkvæmdarstjóra sem talinn er hafa náð að gera mjög góða hluti fyrir félagið en hann hefur aðeins stýrt félaginu í rúmt ár.

Bellew mun fara yfir til Ryanair og þiggja boð flugfélagsins írska um að snúa aftur í heimahaganna en Ryanir bauð Bellew að koma aftur í kjölfar uppsagnar Michael Hickey sem mun hætta sem rekstarstjóri félagsins í lok þessa mánaðar.

Peter Bellew mun taka við stöðu rekstarstjóra Ryanair frá og með 1. desember næstkomandi

Bellew hefur blásið á sögusagnir um að ástæða þess að hann hætti hjá Malaysia Airlines sé af pólitískum toga vegna ósátta um pöntun á 16 nýjum þotum fyrir félagið og segir Bellew að hann vilji eingungis fara aftur heim til Írlands.

„I just want to balik kampung“, sagði Bellew á blaðamannafundi í gær en „balik kampung“ þýðir „heim aftur“ á malasísku.

Bellew mun taka við starfi rekstarstjóra Ryanair frá og með 1. desember næstkomandi og sagði hann í viðtali í gær að hann væri fullviss um að honum tækist að róa hlutina innan herbúða Ryanair.

„Ég þekki fólkið þarna, ég veit hvað þarf að gera og hvernig þarf að gera það“, segir Bellew.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga