flugfréttir
Air Berlin reynir að fá skaðabætur frá Etihad Airways
Air Berlin mun hætta starfsemi sinni þann 28. október
Air Berlin hefur farið fram á að Etihad Airways greiði 1,2 milljarða króna í skaðabætur á þeim forsendum að félagið reyndi aldrei á neinum tímapunkti að koma í veg fyrir gjaldþrot Air Berlin eða veita félaginu stuðning á síðasta spölinum.
Samkvæmt heimildum þýska dagblaðsins Rheinische Post þá kemur
fram að Air Berlin sé í viðræðum við Etihad Airways um skaðabótagreiðslu upp á 1,2 milljarð.
Air Berlin sótti um að vera tekið til gjaldþrotaskipta eftir að Etihad Airways lýsti því
yfir að félagið ætlaði sér ekki lengur að verða samstarfsaðili þess með fjárstuðningi.
Stjórn Etihad Airways varð fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun Air Berlin að sækja um
gjaldþrotaskipti en þá voru skuldir félagsins um 148 milljarðar króna.
Air Berlin hafði sl. sex ár safnað skuldum upp á 334 milljarða króna en félagið
hafði ekki skila inn hagnaði síðan árið 2011.
Air Berlin mun fljúga sitt síðasta flug næstkomandi laugardag (þann 28. október) en eftir það
mun félagið heyra sögunni til.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.