flugfréttir
Dubai Air Show: Emirates pantar fjörutíu Boeing 787-10
- Fá fyrstu þoturnar afhentar árið 2022
Tölvugerð mynd af Boeing 787-10 í litum Emirates á flugi yfir Dubai
Flugsýningin í Dubai hófst í morgun með risastórri pöntun frá Emirates í Dreamliner-þotuna.
Pöntun Emirates hjá Boeing hljóðar upp á 40 eintök af Boeing 787-10 sem er lengsta
Dreamliner-þotan.
Verðmæti pöntunarinnar eru 1.558 milljarðar króna samkvæmt listaverði og er um samkomulag
að ræða en ekki staðfesta pöntun og munu afhendingar hefjast árið 2022.
Emirates hefur í dag eingöngu Airbus A380 risaþotur í flota sínum og Boeing 777 og yrði
Boeing 787 því ný flugvélategund hjá Emirates sem hefur þegar hætt með nokkrar
tegundir af þotum gegnum árin.
Tilkynnt var um pöntunina í morgun á Dubai Air Show flugskýningunni
Með pöntun Emirates mun fjöldi pantanna í Boeing 787-10 fara yfir 200 eintök þegar félagið
hefur staðfest pöntunina en fyrir lok október hafði Boeing fengið pantanir í 171 eintak.
Emirates hafði skoðað möguleikana á að panta Airbus A350-900 sem kom einnig til greina
en félagið komst að þeirri niðurstöðu að Boeing 787-10 væri besti kosturinn fyrir félagið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.